1. fundur - 9. október 2013
Hópurinn hóf formlega störf í dag. Fundartími ákveðinn 14:30 -15:50 á mánudögum og fræslu og lestrartímar á hlaupandi fundartímum eða í annari bundinni viðveru. Fyrsta verkefni hópsins var að hefja vinnu við gátlista sem Landlæknisembættis sendi. Í lok vinnufundar tjáðu einstakir hópmeðlimir sig um af hverju þeir skráðu sig til starfa í hópnum og hvert væri brýnasta verkefni GÍH til heilsueflingar að þeirra mati.
2. fundur - 14. október 2013
Haldið áfram með gátlistann frá landlækni.
3. fundur - 28. október 2013
Gátlistinn kláraður og staðan almennt rædd. Talsvert rætt um bágborna aðstöðu í skólamötuneyti og einnig nestismál nemenda rædd. Næsti fundur verður 12. nóvember þegar Ingibjörg Guðmundsdóttir verkefnisstjóri frá landlækni kemur og hittir starfsfólk skólans. Einnig mun hún hitta vinnuhópinn á sér fundi.
4. fundur - 12. nóvember 2013
Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Landlæknisembættinu kom og hélt fræðslufund fyrir starfsmenn á sal skólans. Hún er verkefnastjóri fyrir Heilsueflandi grunnskóla. Frundurinn var mjög fræðandi og góður. Að honum loknum hitti Ingibjörg vinnuhópnn og málin voru rædd. Ingibjörg afhenti GÍH innrömmuðu plagati sem hengt verður upp í desember við formlegt upphaf heislueflingar GÍH. Ingibjörg mælt með því að byrjað yrði á einhverjum þætti heilsueflingarinnar sem væri í ágætum farvegi.
5. fundur - 18. nóvember 2013
Hópurinn hittist og byrjaði að ræða hvaða þættir starfsins við GÍH væru í góðum farvegi. Hugmyndir komu um að hefja verkefnið á hreyfingarþættinum en hópur ákvað að geðræktin væri eitthvað sem unnið væri markvisst að við GÍH og því væri kjörið að byrja á geðræktinni. Hér er markvisst unnið að bættri líðan nemenda, Olweusarstarf öflugt og vinátta uppi á borðum.
6. fundur - 25. nóvember 2013
Ákveðið var að formlegt upphaf heilsueflingar Grunnskólans í Hveragerði færi fram á opnum gangasöng GÍH fimmtudaginn 12. desember kl. 9:20 að viðstöddum nemendum og starfsfólki skólans. Þar muni skólastjóri hengja upp plagatið góða, íslandsmeistarinn í Crossfit koma og stýra morgunleikfimi og boðið verður upp á mandarínur. Guðbjörg matráður benti á að ef starfsfólk væri ekki haft með í upphafi verkefnis væri það dæmt til að mistakast. Lagt til að ásamt geðræktinni verði þáttur starfsfólksins samhliða unnin. Næsti fundur fer í að útfæra markmið með heilsueflingu starfsfólks og geðræktarþáttarins. Þær hugmyndir sem komu á fundinum voru m.a.
Hugmyndir fyrir heilsueflingu starfsfólks:
7. fundur - 2. desember 2013
Þessi fundur fór í að ræða markmið fyrir heilsueflinguna, bæði almenn og einstaka markmið.
Almenn markmið fyrir geðræktarþátt Grunnskólans í Hveragerði:
Leiðir að marki:
Leiðir að marki fyrir geðrækt starfsfólks:
Einnig voru hugmyndir um aukna virkni nemenda í íþróttastarfi ræddar. Rætt um að hafa vordagana í samstarfi við Hamar og tómstundarfélög bæjarins vel skipulagða. Einnig að hafa þemaviku í íþróttakennslu þar sem fulltrúar íþróttagreina kynntu og kenndu sitt sport.
Hópurinn ræddi einnig að nota Hamarshöll enn frekar undir leiki, hreyfingu, hópefli ofl. Nota afreksfólk íþróttana og þjálfara enn frekar til kynningar.
Heilsueflingarhóp hafa borist hugmyndir af heilsueflingu enda fólk mjög áhugasamt um hana. Kolbrún Guðmundsdóttir sendi nokkrar hugmyndir:
8. fundur - 9. desember 2013
Fámennt en góðmennt í dag. Inga Lóa, Kristín Arna, Karl, Erna og Páll sátu fundinn. Heilsuvörður ræddar, þ.e. hvenær eigi að framkvæma hvera þætti á yfirstandandi skólaári. Fundurinn lagði til:
9. fundur - 6. janúar 2014.
Stuttur fundur í dag. ákveðið var að fresta formlegri byrjun geðræktarinnar til 4. febrúar n.k. Þá kemur Þorgrímur Þráinsson, heldur fyrirlestur um ánægju á vinnustaða og fer í hópeflisleiki með starfsfólk!
10. fundur - 13. janúar 2014
Hópurinn setti niður óskalista að dagsetningum fyrir starfsfólk GÍH, þ.e. hvenær og hvað hópurinn vill gera á vorönn sem viðkemur geðrækt og heilsueflingu. Magrgar góðar hugmyndir og er gaman að segja frá því að þetta verður m.a. gert á vorönn:
Vinnuhópurinn stefnir að kynningu dagskrá í byrjun febrúar. Dagskrá fyrir nemendur verður unnin mánudaginn 27. janúar n.k. og gefin út í febrúarbyrjun.
Einnig var ákveðið að ganga til samstarfs við skemmtinefndina - fulltrúi þeirra, Karl Ágúst, gaf grænt ljós á það - okkur sýndist hann jafnvel vera talsvert feginn...
11. fundur - 20. janúar 2014
Hópurinn fór yfir skóladagatal vorannar og setti inn dagsetningar fyrir viðburði á vegum heilsueflingarinnar. Viðburði s.s.Crossfit kynningu, Listadag, göngur og skemmtikvöld, hlátursdag, golf ofl.
12. fundur - 27. janúar 2014
Í dag var unnið við að setja upp dagskrá vorannar fyrir nemendur. Einnig var farið yfir skipulag 4. febrúar, dagsins sem starfsfólk GÍH hefur formlega sína heilsueflingu. Þá mun Þorgrímur Þráinsson aðstoða starfsfók við að koma sér í rétta gírinn!
Vinnuhópurinn samdi einnig uþb. tíu spurningar sem verða notaðar í starfsmannakönnun GÍH, þar sem viðhorf til helsueflingar verður kannað ásamt fleiru.
Rætt var um lífshlaupið (www.lifshlaupid.is) og ákveðið að hvetja til þátttöku í því með sem víðtækustum hætti hér á bæ. Páll og Karl ræða við skólastjórnendur um útfærslu.
Einnig var ákveðið að Sigríður hjúkrunarfræðingur myndi kanna hvort hún gæti fyrir hönd Heilbrigðisstofnunar Suðurlands staðið fyrir heilsufarsmælingum starfsmanna GÍH.
13. fundur - 3. febrúar 2014
í dag var stuttur fundur, aðallega rætt um lífshlaupið og hvernig það skyldi framkvæmt. Einnig rætt að koma á sem fyrst sameiginlegum fundi með fulltrúum foreldrafélags og einnig nemenda.
14. fundur - 4. febrúar 2014
Þorgrímur Þráinsson kom í heimsókn og hélt fyrirlestur um viðhorf til heilsueflingar. Hann fjallaði á mjög jákvæðan og uppbyggilegan hátt hvernig fólk getur sett sér markmið og hvatti fólk til að elta drauma sína. Að þessu loknu fóru fram skemmtilegir og hressandi hópeflisleikir. Þorgrímur kom því að hjá starfsmönnum að gera "hrósvegg" - starfsmenn hengja upp poka merkta sjálfum sér þar sem sem starfsfólk getur laumað hrósmiðum í. Leikurinn stendur yfir út febrúarmánuð.
Vel hepnaður dagur þar sem geðræktin var í fyrirrúmi.
15. fundur - 17. febrúar 2014
Í dag var fundað um starsmannakönnun og síðustu hnökrar á henni lagaðir. Hún verður send starfsfólki í tölvupósti þriðjudaginn 18. febrúar og fólki gefið út vikuna að svara henni.
Heilsueflingavörður kláraðar og viðburðadagatal einnig. Heilsueflandi nefndin mun standa fyrir skemmtilegum vörðum ásamt starfsmannanefnd á vorönn.
Lagt til og samþykkt að senda tillögur nefndarinnar að geðrækt nemenda til umfjöllunar á stigsfundum þriðjudaginn 18. febrúar n.k.
16. fundur. - 10. mars 2014
Farið yfir niðurstöður heilueflingarkönnunar. Margar athyglisverðar niðurstöður litu þar dagsins ljós s.s. að almennt er viðhorf starfsmanna til heilsueflingar jákvætt, reykingar og áfengisnotkun starfsmanna er ekki mikil og flestir starfsmanna telja sig hafa not fyrir styrk til líkamsræktar.
17. fundur - 17. mars 2014
Nefndin fer yfir og semur dagskrá fyrir heilsueflingardaga á unglingastigi sem fram fara 19. -21. mars n.k. Þar verður m.a. að finna golfkennslu, Jóga, Zumba, Crossfit o.fl.
18. fundur - 31. mars 2014
Fundað og niðurstöður úr starfsmannakönnun ræddar með tilliti til hvaða þáttum heilsueflingar á að sinna á næsta skólaári. Mikill á hugi inna vinnuhóps að vinna að bættu mataræði og auka hreyfingu enn frekar.
19. fundur - 29. apríl 2014
Páll kynnti niðurstöður starfsmannakönnunar á starfsamannafundi.
20. fundur - 26. maí 2014
Heilsueflingarhópur leggur áherslu á að næsta skólaár, 2014-2015 verði áherslan lögð á áfrahaldandi geðrækt nemenda og starfsmanna, aukna hreyfingu og samstarf við heimilin. Páll segir frá því að hann hyggst ekki stýra vinnuhópnum næsta skólaár - hann leggur til að nýr verkefnastjóri verði skipaður fyrir sumarfrí og hann komi til með að leiða vinnu næsta vetrar ásamt einum af stjórnendum GÍH. Niðurstöðum starfsmannakönnunar verður send starfsmönnum GÍH í tölvupósti og einnig oddvitum nýrrar sveitastjórnar - að sveitastjórnarkosningum 2014 loknum.

- Útbúa sýnileg geðorðin tíu
- Útbúa úrræðakort - hvað get ég gert ef mér líður illa?
- Kynningar frá góðum samtökum sem stuðla að bættri líðan, t.a.m. Sara Dögg frá Samtökunum 78
- Útbúa "Vina-vin" á leikvelli - staður fyrir þá sem eru vinalausir eða hafa ekkert við að vera í frímínútum
- Fanney skólastjóri kynnti Vinaliðaverkefnið - ættað frá Noregi og er til framkvæmda í Skagafirði. Það verkefni stuðlar að skipulögðu leikjastarfi í frímínútum og eykur vináttu og kemur í veg fyrir árekstra og einelti. Fanney lagði til að verkefnið verði kynnt sem hluti geðræktarþáttar heilsueflingar á vordögum 2014 og kæmi til framkvæmda haustið 2014. Vel tekið í þessar hugmyndir.
Hugmyndir fyrir heilsueflingu starfsfólks:
- Könnun á líkamlegri og andlegri líðan starfsfólks - vinnueftirlitið
- Heilsuefling - frítt í sund? Afsláttur á heilsustofnun?
- Sameiginleg hreyfing á fundartíma hálfsmáðarlega? Vikulega?
- Geðrækt?
7. fundur - 2. desember 2013
Þessi fundur fór í að ræða markmið fyrir heilsueflinguna, bæði almenn og einstaka markmið.
Almenn markmið fyrir geðræktarþátt Grunnskólans í Hveragerði:
- Að stuðla enn frekar að aukinni vellíðan nemenda og starfsfólks GÍH
- Tilgangurinn með því er að bæta námsárangur, starfsanda og líðan.
Leiðir að marki:
- Kanna líðan nemenda og starfsfólks reglulega og gera upplýsingar um hana sjáanlega og meðvitaða. Nota m.a. niðurstöður úr Olweusarkönnun enn frekar
- Búa til einhverskonar "hamingjuvog" - sjáanlegt mælitæki sem leitast er við að ná árangri með
- Nemendur og starfsfólk fái aukna fræðslu um leiðir í átt að bættri geðheilsu - notast bæði við utan að komandi fræðsu sem og mannauð starfsfólks og nemenda.
Leiðir að marki fyrir geðrækt starfsfólks:
- Leynivinaleikur að jólum frábært upphaf geðræktar
- Hreyfing á fundartíma - aukin samvera
- Könnun á líðan starfsfólks
- Hrósveggur, hrósvika, hrósdagar....
Einnig voru hugmyndir um aukna virkni nemenda í íþróttastarfi ræddar. Rætt um að hafa vordagana í samstarfi við Hamar og tómstundarfélög bæjarins vel skipulagða. Einnig að hafa þemaviku í íþróttakennslu þar sem fulltrúar íþróttagreina kynntu og kenndu sitt sport.
Hópurinn ræddi einnig að nota Hamarshöll enn frekar undir leiki, hreyfingu, hópefli ofl. Nota afreksfólk íþróttana og þjálfara enn frekar til kynningar.
Heilsueflingarhóp hafa borist hugmyndir af heilsueflingu enda fólk mjög áhugasamt um hana. Kolbrún Guðmundsdóttir sendi nokkrar hugmyndir:
- Gæta þess að hafa uppbrot funda með hreyfingu í huga - hléæfingar, klapphringi o.þ.h. Einnig frábært í bekkjarkennslu
- Herðanudd fyrir starfsmenn einu sinni í mánuði
- Að hér verði hægt að vera í ávaxtaáskrift - ávaxtamiðar eða eh þess háttar
8. fundur - 9. desember 2013
Fámennt en góðmennt í dag. Inga Lóa, Kristín Arna, Karl, Erna og Páll sátu fundinn. Heilsuvörður ræddar, þ.e. hvenær eigi að framkvæma hvera þætti á yfirstandandi skólaári. Fundurinn lagði til:
- Að 14. janúar verði innlögn og hópefli fyrri alla starfsmenn skólans. Lagt til að kanna hvort Þorgrímur Þráinsson sé laus í slíka vinnu.
- Að 15. -17. janúar fari fram könnun á líðan starfsmanna.
- Að stjórn starfsmannafélgsins fundi með vinnuhópi um heilsueflingu GÍH á skipulagsdegainn 3. janúar n.k. Að stjórnin verði höfð með í ráðum um heilsuvörður og geðræktardaga út skólaárið.
9. fundur - 6. janúar 2014.
Stuttur fundur í dag. ákveðið var að fresta formlegri byrjun geðræktarinnar til 4. febrúar n.k. Þá kemur Þorgrímur Þráinsson, heldur fyrirlestur um ánægju á vinnustaða og fer í hópeflisleiki með starfsfólk!
10. fundur - 13. janúar 2014
Hópurinn setti niður óskalista að dagsetningum fyrir starfsfólk GÍH, þ.e. hvenær og hvað hópurinn vill gera á vorönn sem viðkemur geðrækt og heilsueflingu. Magrgar góðar hugmyndir og er gaman að segja frá því að þetta verður m.a. gert á vorönn:
- Húmordagur - magavöðvarnir styrktir og hláturshrukkur dýpkaðar
- Göngur - styttri og lengri göngur
- Hjólreiðaferð
- Golfmót
- Listavika
- Crossfit kynning
- Ofl.