Hreyfa sig jafn mikið og fólk um áttrætt
Fyrst birt: 29.10.2013 20:20, Síðast uppfært: 29.10.2013 20:25. Tekið af vef www.ruv.is
Ný rannsókn á atgervi ungra Íslandinga sýnir að þeir hreyfa sig álíka mikið og fólk um áttrætt. Niðurstaðan er skelfileg fyrir unga fólkið, segir Erlingur Jóhannsson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Rannsóknin tekur yfir átta ára tímabil og var holdafar, hreyfing og þrek íslenskra ungmenna skoðað. 1200 voru í úrtakinu og tóku 900 þátt. 65 prósent þeirra voru með átta árum síðar. Íslendingar fæddir árið 1988 og 1994 tóku þátt og var hreyfing þeirra mæld með sérstökum mælum sem sýna virkni einstaklings á hverjum degi.
Fyrsta mæling var gerð árið 2003 og síðan var sama fólkið kallað til aftur 2011, átta árum síðar, til að kanna hvað hefði breyst. Niðurstaðan sýnir að hreyfing þessara aldurshópa hefur minnkað um helming á átta árum. „Þau hreyfðu sig 50% minna en þau gerðu átta árum fyrr, þrek þeirra hefur versnað um 20 prósent og mun fleiri einstaklingar eru skilgreindir of þungir“
Þessar breytingar verða á lífstíl krakkanna þegar þau fara úr einu skólakerfi yfir í annað því að flestir hætta í íþróttum í 9. eða 10. bekk.